Verkefnaskil (partur1)

5 febrúar, 2008 at 12:52 am (framhaldssögur, skyndikynni, verkefnaskil, vinnustaðir) (, , , , , , , , , )

Eftir 2 mánaða þrotlausa vinnu sáum við á skrifstofunni loksins fyrir endann á verkefninu. Það var mikið að gera síðustu dagana fyrir okkar fyrirframgefna “deadline” en nú var dagurinn runninni upp og allt var að klárast. Ég var loksins farinn að hafa smá tíma til að kíkja á þá tölvupósta sem safnast höfðu upp síðustu 3 vikurnar frá vinum og kunningjum sem vildu fara að sjá meira af mér. Ég svaraði stutt en sagði að fólk mætti endilega hafa samband við mig eftir helgina en helgin færi í vinnuferð. Ég hafði einfaldlega hunsað alla tölvupósta sem komu ekki frá viðskiptavinum okkar síðustu vikurnar þar sem stressið magnaðist. Einn tölvupósturinn sem ég hafði fengið fyrir 3 dögum skar sig úr frá hinum. Það var póstur frá stelpu sem var að vinna hjá viðskiptavini fyrirtækisins en þennann póst hafði hún sent frá sínu eigin netfangi en ekki fyrirtækjanetfangi sínu. Yfirskriftin var “Þegar þetta er búið”

Í tölvupóstinum sagðist hún vilja fá að sjá útkomuna áður en hún yrði send úr húsi sem var morguninn eftir skilafrestinn okkar hjá fyrirtækinu. Undir skrifaði hún Róza. Ég svaraði póstinum og sagðist verða frameftir þetta kvöld að leggja lokahönd á þetta því það var ég sem sá um að setja allt í lokabúninginn. Ég átti ekkert mikið verk fyrir höndum en hafði kosið að gera forsíðu og þessháttar síðasta kvöldið þegar allir væru búnir að skila af sér sínum verkefnum. Ég sendi henni þetta og hélt áfram að vinna.

Nokkrum mínútum seinna kom svar frá henni þar sem hún sagðist vilja renna við hjá mér ef það væri í lagi. Ég svaraði henni að það væri ekkert mál hún þyrfti bara að hringja svo ég gæti hleypt henni inní húsið en það var 3.hæða hús og á fyrstu hæðinni var aðeins móttaka og kaffistofa. Ég sjálfur sat á 2.hæð en uppi á efstu hæðinni voru framkvæmdastjórn og fundaherbergin.

Dagurinn leið og allt gekk samkvæmt áætlun. Það var góður andi yfir hópnum og spennan að losna loks við þetta útúr húsinu var mikil. Við vorum 15 sem unnum við þetta og stefnan var að fara í vorferð til Oslo helgina eftir. Klukkan 18:30 fórum við öll saman að borða í nágreninu en ég var sá eini sem þurfti að fara í vinnuna eftir matinn. Allir höfði lokið sínu og sögðu í gríni við mig að þau færu bara að pakka í töskurnar og við myndum bara hittast á flugvellinum hádeginu daginn eftir því þau hefðu ekkert að gera meira, svo bættu þau við að ég vonandi næði að klára þetta svo ég gæti farið með þeim. Ég hunsaði bara þessi skot þeirra enda vissi ég að ég yrði ekki nema 2 klukkutíma að klára þetta. Við pöntuðum vín með matnum en ég passaði mig því ekki væri vel séð ef ég væri að fá mér meira en það sem fallið gæti undir “vín með mat” þó svo að aðrir væru að hugsa um að fá sér meira en það. Ég náði samt að fá þjóninn til að selja mér 2 bjóra til að taka með mér útaf staðnum.

Framhald væntanlegt

2 Ummæli

  1. nonni sagði,

    þessi lofar góðu:p

  2. Kolla sagði,

    Maður bíður spennt eftir framhaldinu

Rita ummæli